Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur eftirfarandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Alþb. í Austurl., Þuríður Backman hjúkrunarfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Hjörleifur Guttormsson, 4. þm. Austurl.``
Þuríður Backman hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.