Framkvæmd samkomulags við heilsugæslulækna

Mánudaginn 07. október 1996, kl. 15:42:36 (61)

1996-10-07 15:42:36# 121. lþ. 3.1 fundur 35#B framkvæmd samkomulags við heilsugæslulækna# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 3. fundur

[15:42]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Gert var samkomulag við heilsugæslulækna fyrir tveim mánuðum í 21 lið. Einn liðurinn var valfrjálst stýrikerfi og um það atriði snýst nú áhugi manna. Læknafélagið mun koma að útfærslu þessa stýrikerfis og mun hefja vinnu með heilbrrn.