Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Þetta er ekki spurning um að sú sem hér stendur trúi að þetta sé framkvæmdarvaldsþing. Ég horfi bara á staðreyndir og reynsluna. Stjórnarfrumvörpum er ekki breytt í meðförum þingsins nema viðkomandi ráðherra blessi það. Nefndirnar geta sjaldnast haft sjálfstæða skoðun á hverju þurfi að breyta og ef það gengur gegn vilja ráðherrans er því yfirleitt ekki breytt. Sama gildir um þingmannafrumvörp. Eiginlega er borið undir ráðherrann hvort honum þóknist að samþykkja viðkomandi þingmál. Ég held að allir þingmenn þekki þessa meðferð á málum.
Ég nefndi einnig hve mikið embættismennirnir ráða ferðinni um löggjöf sem sett er. Ég hef orðið vitni að því í störfum mínum í þingnefndum að embættismaður sem semur frv. situr yfir þingnefndinni til loka, tekur niður það sem honum er þóknanlegt að verði breytt, afhendir formanni nefndarinnar og síðan er það lagt til af hálfu meiri hlutans. Ég hygg að margir þingmenn þekki það sem ég er að vitna til. Slík vinnubrögð tel ég vera hættuleg þingræðinu. Ég vil að forsætisnefnd og þingmenn skoði einmitt hvernig þessu er hægt að breyta.