Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Þessar reglur hafa verið settar eins og fram hefur komið oft í umræðunum. Þær eru settar hinn 8. október af stjórninni og staðfestar hinn 15. október af ráðuneytinu. Þessar reglur eru hins vegar þannig að það fara fram auglýsingar og sá aðdragandi tekur nokkurn tíma og ég hygg að framkvæmd innkaupareglnanna skili sér ekki fyrr en einhvern tíma í febrúar á næsta ári.
Mér finnst alveg sjálfsagt að nefnd í þinginu kanni þetta mál. Það fer auðvitað eftir því hvort nefndin vill það eða ekki. En það er sjálfsagt að beina þeim tilmælum til þeirra sem um þessi mál hafa fjallað að þeir komi og gefi nefndinni upplýsingar um það hvernig staðið var að þessu máli.