Siv Friðleifsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrrh. fyrir hennar málflutning. Hæstv. heilbrrh. ber ábyrgð á tóbaksvörnum á Íslandi og þess vegna er þetta mál afar mikilvægt. Ég vil þakka hæstv. ráðherra sérstaklega fyrir það að taka undir þá tillögu sem ég kom fram með áðan að heilbr.- og trn. skoðaði þetta mál alveg sérstaklega og fengi álit á því hvort við yrðum að staðfesta hinar nýju reglur eða þola hinar nýju reglur og hefur verið bent á í þessum umræðum að hugsanlega væri gott að fá Lagastofnun Háskólans til að skoða þetta mál. Mér þykir það ágætis hugmynd og tel eðlilegt að við ræðum það í heilbr.- og trn. hverja við eigum að fá til að skoða málið ofan í kjölinn. Það hefur komið fram að ekki er til neitt skriflegt lögfræðiálit og því er mjög eðlilegt að heilbr.- og trn. taki málið til sérstakrar skoðunar og ég get ekki betur séð en hæstv. heilbrrh. sé að taka undir þá hugmynd beint úr ræðustóli og það ber að þakka.