Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til að inna hæstv. samgrh. eftir því hvenær von sé á því að ráðherrann hefjist handa við að gera nýja langtímaáætlun í vegagerð og hvort hann muni ekki hafa í heiðri þá venju sem hefur skapast við þessi störf að fulltrúar allra þingflokka komi að því máli. Ég rifja það upp að síðast var lögð hér fram í þingsölum tillaga að langtímaáætlun í vegagerð þingveturinn 1990--1991 sem var óvenju stuttur þingvetur vegna komandi alþingiskosninga vorið 1991. Hér var um að ræða vandaða áætlun til 12 ára sem byggð var á áliti fulltrúa allra stjórnmálaflokka og minni ég á að t.d. átti Sjálfstfl. sem þá var í stjórnarandstöðu tvo nefndarmenn einn þingflokka. Því miður entist ekki tíminn til að ræða þessa ítarlegu tillögu því eins og ég gat um áðan var þingveturinn óvenju stuttur. Í ljós kom að einn nefndarmanna í þáv. nefnd, hv. þm. Halldór Blöndal, nú hæstv. samgrh., sýndi málinu ákaflega mikinn áhuga hér í þingsölum og varði miklum tíma úr ræðustól við að ræða málið þannig að það varð ekki útrætt.