Einbreiðar brýr

Mánudaginn 28. október 1996, kl. 15:28:51 (513)

1996-10-28 15:28:51# 121. lþ. 11.2 fundur 50#B einbreiðar brýr# (óundirbúin fsp.), ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[15:28]

Ísólfur Gylfi Pálmason:

Herra forseti. Ég þakka samgrh. fyrir ljúf og greið svör og ábendingar. Við fengum kannski ekki alveg fastmótað svar við því hvort búið væri að móta einhverja mótaða stefnu hvað þetta varðar en engu að síður les ég þó út úr svörum hæstv. ráðherra að þessi mál séu í athugun í ráðuneytinu.