Veiðileyfagjald

Mánudaginn 28. október 1996, kl. 16:35:57 (526)

1996-10-28 16:35:57# 121. lþ. 11.8 fundur 3. mál: #A veiðileyfagjald# þál., JBH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur

[16:35]

Jón Baldvin Hannibalsson (andsvar):

Herra forseti. Þegar þar er komið umræðunni að hv. 3. þm. Suðurl. segir að málflutningur þeirra sem ekki eru honum sammála sé landburður af kjaftæði, er þessari umræðu efnislega lokið. En þeir menn sem grípa til slíkra örþrifaráða eru í raun búnir að viðurkenna að þeir eru rökþrota.