Iðnaðarlög

Þriðjudaginn 29. október 1996, kl. 14:46:15 (576)

1996-10-29 14:46:15# 121. lþ. 12.8 fundur 76. mál: #A iðnaðarlög# (EES-reglur) frv., iðnrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 12. fundur

[14:46]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á iðnaðarlögum, nr. 42 frá 18. maí 1978, með síðari breytingum. Frv. sem er á þskj. 76 og er 76. mál þingsins er nú endurflutt með þeirri smábreytingu frá síðasta þingi að í stað þess að tala um álit frá viðkomandi iðnaðarmannafélagi er nú talað um ,,félag iðnaðarmanna, m.a. landsamtök meistara og sveina.``

Í framsöguræðu minni fyrir frv. á síðasta löggjafarþingi gerði ég ítarlega grein fyrir efni þess og mun því stytta mál mitt nú. Ástæðan fyrir því að frv. um þetta efni var samið í iðnrn. og síðan breytt eftir samráð við ýmis samtök í iðnaði er sú að ákvæði fimm gerða sem voru hluti af EES-samningnum í upphaflegri mynd hafa ekki enn verið tekin til fulls upp í landsrétti hér og barst ábending frá Eftirlitsstofnun EFTA þar að lútandi fyrir allnokkru.

Að meginstefnu til veita gerðir þessarar ríkisborgurum EES-ríkjanna rétt til að stafa í iðnaði í öðrum aðildarríkjum á grundvelli starfs og starfsþjálfunar, nánar tiltekinn tíma, 6--8 ár. Með frv. er stefnt að nauðsynlegri breytingu á iðnaðarlögum til að tryggja þann rétt. Lögreglustjórar skulu staðfesta réttmæti gagna um starf og starfsþjálfun eftir að viðkomandi félagi iðnaðarmanna, m.a. landssamtökum meistara og sveina, hefur verið gefinn kostur á að segja álit sitt og hafa lögreglustjórar eftirlit með framkvæmd ákvæðanna. Iðnrh. getur því kveðið nánar á um starfsréttindi í reglugerð með svipuðum hætti og aðrir ráðherrar hér á landi gerðu er lögum á þeirra sviði var breytt árið 1993 á grundvelli svipaðra EES-gerða.

Sérstök skilyrði eru sett í gerðunum um starfsréttindi. Þannig þarf ríkið, þar sem starfsemi var stunduð, að gefa út skilríki er staðfesti að viðkomandi aðili hafi lagt stund á starfsemina. Ef ekkert skilyrði er um starfsþjálfun í upphaflega ríkinu verður sá aðili er vill fá starfstímann metinn í öðru EES-ríki að sýna fram á að ekki hafi meira en tíu ár liðið frá því hann lagði stund á viðkomandi starfsemi. Gert er ráð fyrir að lögreglustjórar staðfesti starfsréttindi, en þeir gegna nú hlutverki samkvæmt iðnaðarlögum, þ.e. láta af hendi iðnaðarleyfi og meistarabréf. Bætt er við að viðkomandi félagi iðnaðarmanna m.a. landsamtökum meistara og sveina skuli gefinn kostur á að segja álit sitt.

Fjárlagaskrifstofa fjmrn. fær ekki séð að samþykkt frv. hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð.

Þar eð mjög hefur dregist að taka viðkomandi gerðir upp í íslenskum rétti óska ég þess að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til iðnn. og það verði afgreitt sem fyrst á haustþingi ef hægt er.