Jarðhitaréttindi

Þriðjudaginn 29. október 1996, kl. 15:16:58 (586)

1996-10-29 15:16:58# 121. lþ. 12.9 fundur 14. mál: #A jarðhitaréttindi# frv., 15. mál: #A orka fallvatna# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 12. fundur

[15:16]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. spurði um hvað liði frumvarpssmíð um þau mál er hv. þm. mælti hér fyrir, þ.e. frumvarpssmíð á vegum ríkisstjórnarinnar. Það kom ítrekað fram við fyrirspurnir á fyrra þingi að það var nefnd að störfum sem ég skipaði til þess að fara yfir þessi mál. Sú nefnd skilaði af sér tillögum í sumar, fullbúnu lagafrv. sem núna er til umfjöllunar í ríkisstjórn. Frv. um eignarrétt á auðlindum í jörðu er þar til umfjöllunar og frv. um þjóðlendur er þar einnig til umfjöllunar.