Fyrirspyrjandi (Bryndís Hlöðversdóttir):
Herra forseti. Í byrjun árs 1996 komu íslensk stjórnvöld fyrir nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum og svöruðu spurningu nefndarinnar um framkvæmd kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna hér á landi. Í kjölfar heimsóknarinnar kom nefndin athugasemdum og tilmælum á framfæri við íslensk stjórnvöld um aðgerðir í því skyni að tryggja framkvæmd sáttmálans í raun. M.a. kom fram bein tillaga frá nefndinni um það að stjórnvöld stæðu fyrir námskeiðum fyrir dómara um jafnréttismál og mannréttindamál og að auki var lögð áhersla á að stjórnvöld stæðu fyrir upplýsingadreifingu og fræðslu til dómara varðandi sáttmálann.
Þann 8. maí sl. spurði ég hæstv. dómsmrh. um það á hvern hátt ráðuneyti hans, sem fer með mannréttindamál, hygðist bregðast við þessari tillögu nefndarinnar og var því þá svarað til að fyrirhugaður væri fundur með fulltrúum félmrn., Dómarafélags og Skrifstofu jafnréttismála um þetta mál. Síðan þá hefur reyndar hæstv. félmrh. gefið sáttmálann út í sérprentun og er nú unnið að því að koma honum á framfæri til dómara en fræðsluna þarf að hefja.
Í framhaldi af fyrirspurn minni frá því vor vil ég spyrja hæstv. dómsmrh.:
1. Hvað líður undirbúningi dómsmálaráðuneytisins að jafnréttisfræðslu fyrir dómara, í samræmi við tilmæli nefndar Sameinuðu þjóðanna sem hefur með höndum eftirlit með framkvæmd kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna (samnings um afnám allrar mismununar gagnvart konum)?
2. Hver var niðurstaða fundar sem ráðuneytið hélt með fulltrúum félagsmálaráðuneytisins, Dómarafélagsins og Skrifstofu jafnréttismála í vor?
3. Hefur ráðuneytið í hyggju frekari aðgerðir vegna tillagna nefndarinnar um námskeið fyrir dómara um mannréttindamál og ef svo er, hverjar eru þær?