Sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu

Miðvikudaginn 30. október 1996, kl. 14:57:22 (643)

1996-10-30 14:57:22# 121. lþ. 14.7 fundur 77. mál: #A sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur

[14:57]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Ég og fyrirspyrjandi erum tiltölulega sammála í þessu máli. Það er hagræði í því að samreka slökkvilið og sjúkraflutninga en það er eðlilegt að ríkið njóti hagræðisins engu síður en sveitarfélögin og það er ekki verið að stilla neinum upp við vegg heldur eru þetta eðlilegar samningaviðræður sem eru í gangi hjá sveitarfélögunum.