Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 31. október 1996, kl. 14:38:45 (711)

1996-10-31 14:38:45# 121. lþ. 15.1 fundur 56#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur

[14:38]

Svavar Gestsson (andsvar):

Ég verð að játa, hæstv. forseti, að ég er aðeins orðinn ryðgaður í þessum bókmenntum sem hv. þm. vitnaði til því ég á aðeins eldri börn en hann, en mér líkaði það vel sem hv. þm. sagði. (Gripið fram í: ,,Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.``)