Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Út af fyrir sig gæti verið fróðlegt fyrir hv. félmn. að leggja vinnu í að kanna hvort einhverjar hættur séu í þessu fólgnar varðandi sjómenn og varðandi grunnskólann. Ég held hins vegar að við ættum ekki að vera að gefa undir fótinn með þá túlkun. Ég held að hún sé óheppileg og ég hef ekki trú á því að það reyni á þetta nema þá samkvæmt kæru. Þá þyrfti einhver að kæra þessa aðferð hjá okkur til Evrópusambandsins. Þá yrði það auðvitað að hafa sinn gang.
Varðandi ákvæðin eins og þau eru í Noregi þá er ég vanbúinn að svara hvernig er með samræmingu á því. Ég held að hér sé reynt að túlka þetta rúmt. Ég held að það sé gert líka annars staðar á Norðurlöndunum eftir því sem ég veit best. Ég hef ekki borið þetta nákvæmlega saman. Ég veit hins vegar að út af þessu máli urðu töluverð átök á danska þinginu í fyrravor. Þetta frv. er borið fram í annað sinn og ég lagði ekki áherslu á að fá það afgreitt fyrr en ljóst væri hvað Danir mundu gera í málinu en mér skilst að þeir séu búnir að samþykkja að taka tilskipunina upp en það var mikil andstaða gegn því í danska þinginu.