Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég hef lagt svohljóðandi fyrirspurn fram til félmrh. varðandi móttöku flóttamanna:
,,Hefur ríkisstjórnin markað stefnu um móttöku flóttamanna til landsins? Hefur ráðherra lagt fyrir ríkisstjórnina tillögu um að tekið verði á móti ákveðnum fjölda flóttamanna á ári hverju eins og flóttamannaráð lagði til?``
Það var þýðingarmikil gjörð að setja á flóttamannaráð í tíð fv. ríkisstjórnar og í henni fólst að stjórnvöld ætluðu markvisst að axla sína ábyrgð í samfélagi þjóðanna og taka betur á en áður í þessu hjálparstarfi. Ég minnist þess að félmrh. hafi talað um að í ráðherratíð sinni myndi hann leggja til að tekið yrði á móti ákveðnum hópum flóttamanna en hafði einhver orð um það að hann myndi nú ekkert vilja binda hendur komandi ríkisstjórna.
Þjóðin öll fylgdist gjörla með komu flóttafólks frá Bosníu síðasta vetur. Engum blandaðist hugur um þakklæti fólksins sem var að eignast ný heimkynni á nýjum fjarlægum slóðum, heimkynni í landi sem er svo ólíkt heimalandi þess. Það kom jafnframt fram hvað þetta fólk hafði miklar væntingar um nýja dvalarstaðinn og hvað fólkið var jákvætt þrátt fyrir ólík tungumál, ólíkt veðurfar, óblíð náttúruöfl og það ókunna sem beið. Það var til fyrirmyndar og kom mér reyndar ekki á óvart hvernig Ísfirðingar tóku á móti flóttafólkinu. Allur bærinn virtist leggja hönd á plóg. Hver fjölskylda fékk stuðningsfjölskyldu, allt var jákvætt og fólkið var velkomið. Við erum reyndar í gegnum árin frá því að við tókum fyrst á móti fólki frá Víetnam búin að byggja upp og læra hvernig við þurfum að veita þjónustu ef við erum að taka á móti flóttafólki og ef við erum að opna landið okkar í einhverjum mæli fyrir fólki sem á um sárt að binda. Rauði krossinn hefur þar unnið mikið brautryðjendastarf. Það hefur verið tekið til fyrirmyndar á málum hjá Námsflokkum Reykjavíkur og þeir hafa haft miklu hlutverki að gegna gagnvart því fólki sem hingað hefur komið og þurft að læra nýtt mál og nýja siði. Við erum búin að byggja upp ákveðna þekkingu varðandi þarfir þess fólks sem kemur. Og því spyr ég ráðherra:
Hefur ríkisstjórnin markað stefnu um móttöku flóttamanna til landsins?
Hefur ráðherra lagt fyrir ríkisstjórnina tillögu um að tekið verði á móti ákveðnum fjölda flóttamanna á ári hverju eins og flóttamannaráð lagði til?
Eða hyggst hann bjóða slíku fólki að koma hingað núna og er hann með einhverjar áætlanir ef hann hefur ekki lagt þetta til við ríkisstjórn?