Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 07. nóvember 1996, kl. 22:22:46 (1021)

1996-11-07 22:22:46# 121. lþ. 20.16 fundur 26. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (endurbætur og viðhald á eigin húsnæði) frv., Flm. TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur

[22:22]

Flm. (Tómas Ingi Olrich) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ekkert launungarmál að sá sem hér talar hefur þungar áhyggjur af þessu frv. og málið sem hér er til umræðu ásamt öðru máli sem hefur verið lagt hér fram og snertir samningsbundinn húsnæðissparnað lýsa vel afstöðu minni til þessara mála og sérstaklega áhrifanna á skattkerfið.