Lánasjóður íslenskra námsmanna

Þriðjudaginn 12. nóvember 1996, kl. 14:06:11 (1030)

1996-11-12 14:06:11# 121. lþ. 21.11 fundur 7. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (samtímagreiðslur o.fl.) frv., menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[14:06]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef lýst afstöðu minni til samtímagreiðslnanna í ræðu minni. Varðandi tímasetningar á þessu þá ætla ég ekki að fullyrða neitt um þær. Ég tel að frv. sem hér liggur fyrir sé svo meingallað að ég mun ekki leggja því lið. Það er verið að vinna að endurskoðun á lögunum á grundvelli samkomulags á milli stjórnarflokkanna og þær tillögur mun ég flytja hingað til Alþingis þegar þær liggja fyrir.