Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta misskilning. Það er ekki verið að binda þetta við einn þriðja í sambandi við leikhúslistafólkið eins og hv. ræðumaður taldi heldur er verið að segja það að allt að þessari fjárhæð megi renna til uppfærslu á leiksýningum leikhópa. En það er skýrt fram tekið að einnig er hægt að styrkja einstaka leikhúslistamenn umfram þennan einn þriðja þannig að þetta er ekki bundið við það.