Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er undarlegt að heyra að sjálfræðissvipting sé mjög alvarlegur hlutur á sama tíma og lagt er til að svipta alla unglinga frá 16--18 ára sjálfræðinu. Ég fellst því ekki á þessi rök. Það sem ég er að tala um er ekki sjálfræðissvipting í þeim skilningi þegar fullorðið fólk er svipt sjálfræði, heldur einhver einföld sjálfræðissvipting á unglinga, bara tímabundin, bara frestun á sjálfræðinu fram til t.d. 18 ára aldurs eða 19 ára aldurs þannig að það yrði engan veginn eins alvarleg aðgerð og þegar fullorðinn maður er sviptur sjálfræði. Þessi svipting mundi að sjálfsögðu flokkast undir eitthvað allt annað og menn mundu ekki burðast með hana alla ævi því þetta er nákvæmlega eins og það sem flutningsmenn leggja til, að menn öðlist sjálfræði við 18 ára aldur. En það yrðu aðeins þeir einstaklingar sem hafa af einhverjum ástæðum farið út af sporinu. Ég get því ekki séð að þetta yrði alvarleg sjálfræðissvipting. Hún mundi ekki koma neitt niður á þeim einstaklingum sem yrðu fyrir henni.