Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna þeirrar hugmyndar sem hér kom fram hjá hv. 10. þm. Reykv. vil ég aðeins segja að það getur verið gott uppeldisatriði að mínu mati að fólk, og ekki síst þeir sem brotið hafa af sér, kynnist afleiðingum brotanna með svo skýrum hætti sem hann var að gera tillögu um. Ég er hins vegar ekki þeirrar skoðunar að það eigi að vera hluti af refsilöggjöfinni. Refsingar samkvæmt hegningarlögum felast í frelsissviptingu og sektum, en hitt gæti verið þarft uppeldisatriði þegar þannig stendur á.
Ég vil einnig upplýsa það í tilefni af þeim atburðum sem hv. þm. minntist á að um nokkurt skeið hefur verið í undirbúningi frumvarp að nýjum vopnalögum þar sem m.a. á að kveða á um meðferð vopna á mun víðtækara sviði en gert hefur verið fram til þessa. Í gildandi lögum er einungis fjallað um skotvopn, en í drögum að nýju frv. sem er í lokaundirbúningi er fjallað um vopn í miklu víðtækari skilningi, m.a. hnífa og önnur eggvopn. Ég vænti þess að með nýrri og markvissri löggjöf á því svið verði hægt að taka ákveðnar á þeim vandamálum sem upp hafa komið í þessu efni, en þetta frv. er nú í lokaundirbúningi í ráðuneytinu.