Ragnar Arnalds (andsvar):
Herra forseti. Ég held að ekki þurfi að fjölyrða frekar um persónuafsláttinn og skattfrelsismörkin. Hæstv. ráðherra viðurkennir með orðum sínum að í ráðherratíð hans hefur persónuafsláttur mjög lækkað og skattfrelsismörkin hafa sigið stöðugt niður. Og það er alveg tilgangslaust fyrir hann að reyna að koma ábyrgðinni yfir á einhvern annan hvort sem sá sem hann reynir að koma ábyrgðinni yfir á er forseti lýðeldisins, sem var fjmrh. fyrir fimm árum, eða Bismarck sem var kanslari Þýskalands fyrir rúmlega 100 árum.
Ég held að hæstv. ráðherra ætti miklu frekar að gera sér grein fyrir því að þetta ástand mála er með öllu óviðunandi fyrir fólk með lágar tekjur og meðaltekjur og einmitt leiðrétting á þessu atriði er eitt allra brýnasta verkefni sem við stöndum frammi fyrir í skattamálum.