Tryggingagjald

Fimmtudaginn 14. nóvember 1996, kl. 21:40:34 (1275)

1996-11-14 21:40:34# 121. lþ. 24.7 fundur 145. mál: #A tryggingagjald# (gjaldhlutfall) frv., EgJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur

[21:40]

Egill Jónsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort beri að líta á þessa síðustu ræðu sem andsvar. En ef ég ætti helst að ráða eitthvað í þau efni þá er meginmunurinn á hans skoðunum og mínum sá að ég tel eðlilegt að upplýsa málið fyrir fram þannig að menn sjái hvaða áhrif þetta kunni að hafa í stað þess, eins og kom fram í ræðu hv. þm., að fyrst ætti að taka ákvörðunina og leggja á skattana og líta síðar á afleiðingarnar.