Vörugjald

Fimmtudaginn 14. nóvember 1996, kl. 22:36:47 (1291)

1996-11-14 22:36:47# 121. lþ. 24.8 fundur 142. mál: #A vörugjald# (gjaldflokkar, lækkun gjalda) frv., fjmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur

[22:36]

Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé ekkert að óttast í þessum efnum. Þau frv. sem hér hafa verið kynnt njóta stuðnings stjórnarflokkanna og stjórnarflokkarnir hafa góðan meiri hluta á þingi. Það breytir því hins vegar ekki að það er mjög gott að stuðningurinn kemur víðar að eins og á hefur verið bent í umræðunum.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka stuðning hv. þm. Ég met hann að sjálfsögðu mikils. Sér í lagi vil ég þakka honum fyrir að taka þátt í andsvörum hér áðan og skýra m.a. það út hvers vegna æskilegt er að samræma tryggingagjaldið eins og hann gerði með ágætum í því máli sem áður var á dagskrá.