Endurskoðun laga um Lánasjóð ísl. námsmanna

Mánudaginn 18. nóvember 1996, kl. 15:07:28 (1312)

1996-11-18 15:07:28# 121. lþ. 26.1 fundur 90#B endurskoðun laga um Lánasjóð ísl. námsmanna# (óundirbúin fsp.), BH
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:07]

Bryndís Hlöðversdóttir:

Herra forseti. Hæstv. menntmrh. svaraði ekki öllum þeim spurningum sem fyrir hann voru lagðar. Ég spurði m.a. hvenær nefndin hefði síðast komið saman og hvenær væri fyrirhugað að næsti fundur yrði haldinn. Ég geri ráð fyrir að hæstv. menntmrh. hljóti að fylgjast með því af miklum spenningi þar sem hann hefur lýst því yfir að samkomulag muni liggja fyrir á næstu dögum þannig að hann hlýtur að hafa einhverja hugmynd um hvað sé fyrirhugað í nefndinni. Hann svaraði heldur ekki því sem ég spurði um: Er komið fullt samkomulag milli stjórnarflokkanna um breytingu á lögunum um Lánasjóð ísl. námsmanna? Svör liggja ekki enn fyrir við þessum fyrirspurnum og ég óska eftir því að hæstv. ráðherrann svari þeim.