Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp sem formaður þingflokks annars stjórnarflokksins og mér finnst að ef hv. þingmenn, eins og hér hefur komið fram, telja sig geta krafist þess að fá svör frá ráðherrum, þá verði ráðherrar að fá að vita fyrir fram um hvað hv. þingmenn ætla að spyrja. Það hefur komið til tals að hafa þann háttinn á að hæstv. ráðherrar fái að vita fyrir fram um spurningarnar og þá geta þeir eflaust gefið betri svör og það er mál sem við þurfum bara að ræða. En miðað við það form sem við höfum valið okkur geta hv. þingmenn ekki krafist þess að fá mjög ítarleg svör.
Ég ætla ekki að dæma um þetta einstaka tilfelli sem hér varð að umræðuefni, en ég get bent á það að núna á síðasta Norðurlandaráðsþingi var það fyrirkomulag tekið upp að það var fyrirspurnatími til ráðherra. Þá ræddum við það í þeim þingflokkum sem þar starfa, alla vega mínum, hvort fyrirkomulagið við ættum að hafa. Ef við veldum það fyrirkomulag að ráðherrar vissu ekki fyrir fram um spurningarnar, þá væri ekki hægt að eiga von á því að svörin yrðu jafnítarleg. Samt var það fyrirkomulag valið. Mér finnst að þetta sé mál sem snúist um þessi atriði og þau getum við eflaust rætt á fundum okkar formanna þingflokka.