Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég gæti ekki verið meira sammála félmrh. en bara með því að setja ,,ditto`` undir þá ræðu sem hann flutti hér áðan. Hins vegar hlýtur það að vekja athygli þegar ráðherra í ríkisstjórninni flytur ræðu eins og hann gerði áðan þar sem þetta virðist allt vera svo auðvelt og einfalt, vegna þess að, eins og ég sagði áðan, menn hafa sett fram ákveðnar efnislegar ástæður fyrir því að þetta hefur ekki verið talið gerlegt og kerfislegar líka. Ég vil m.a. nefna þá taxta sem ákvæðisvinnan byggir á, t.d. í fiskvinnslu og víðar. Ég vil líka nefna Lífeyrissjóð opinberra starfsmanna sem byggir á eftirmannsreglu. Gerir ráðherrann ráð fyrir því að þessi málefni sem hafa hingað til verið talin standa í vegi fyrir breytingum, verði upphafin frá og með næstu kjarasamningum? Það væri mjög fróðlegt ef það yrði upplýst hér.