Stytting vinnutíma án lækkunar launa

Mánudaginn 18. nóvember 1996, kl. 16:21:54 (1347)

1996-11-18 16:21:54# 121. lþ. 26.13 fundur 4. mál: #A stytting vinnutíma án lækkunar launa# þál., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[16:21]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að ég sé búinn að gera grein fyrir skoðunum mínum hér. Nú er það reyndar ekki á mínu borði að semja við opinbera starfsmenn. Það er verkefni fjmrh. og það er fjmrh. sem fer með þau mál fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnin er ekki fjölskipað stjórnvald þannig að þá þegar af þeirri ástæðu kem ég ekki beint að þessu máli.

Ég tel hins vegar, eins og ég hef margtekið fram, að þetta sé atriði og að þessu eigum við að stefna.