Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):
Virðulegi forseti. Það má vera rétt og ég býst við að rétt sé að sagt hafi verið upp vaktafyrirkomulagi hjá Tollgæslunni í Reykjavík, tollstjóranum í Reykjavík og kannski víðar. Ástæðan er sú að verið er að reyna að vinna að skipulagsbreytingum hjá tollinum til þess að freista þess að ná fram hagræðingu hjá þeirri stofnun eins og svo mörgum öðrum ríkisstofnunum.
Ég get ekki staðfest það sem hv. þm. nefndi og komið hefur fram í blöðum að kvöld- og næturvaktir verði lagðar niður. Því miður get ég ekki staðfest það hér og skal ekki um það segja hvort af því verður. En ég veit að það er verið að skoða þessi mál og eitt af því sem verið er að skoða er hvort að hugsanlegt sé að greitt sé sérstaklega fyrir þær skipakomur sem eiga sér stað utan venjulegs vinnutíma. Það kann að vera nauðsynlegt og er í sjálfu sér ekkert við því að segja að fyrir þjónustu á þeim tíma sólarhringsins, sem er auðvitað dýrari, sé greitt eitthvað aukalega til að hægt sé að halda henni úti.
Þá vil ég vegna orða hv. þm. og það mun einnig hafa komið fram í þeirri frétt sem vitnað var til, að það komi sérstaklega fram hér að þetta mun að sjálfsögðu ekki bitna á fíkniefnaeftirliti tollsins. Þvert á móti er nú unnið að því að styrkja þá starfsemi og verður væntanlega hægt að greina frá því sérstaklega innan tíðar.