Svavar Gestsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hæstv. forsrh. að þingmenn stjórnarflokkanna eru líka þingræðið og ég tel mjög mikilvægt að við gerum okkur öll grein fyrir því sem hér eru, líka hann, vegna þess að það er veruleikinn í málinu að hér snýst þetta um það að allir þingmenn, líka þingmenn stjórnarflokkanna, haldi tilteknu sjálfstæði gagnvart framkvæmdarvaldinu. Þegar breytingartillaga er kynnt með þessum hætti, með leyfi forseta: ,,Þá er einnig lagt til að brott falli úr þessari grein þýðingarlaust ákvæði um að ríkisendurskoðandi sé starfsmaður Alþingis og beri ábyrgð gagnvart því, enda bætir það engu við það sem þegar er komið fram ... og er til þess fallið að valda ruglingi eins og það er staðsett í 2. gr.`` Svo er því bætt við að þetta sé hortittur. Sem sagt, það sem Alþingi hefur verið að fjalla um á undanförnum árum til að styrkja stöðu sína gagnvart framkvæmdarvaldinu í þágu þjóðarinnar allrar á hverjum tíma, það er talið hortittur. Umboðsmaður Alþingis hortittur, ríkisendurskoðandi hortittur númer tvö. Ég er sannfærður um það, hæstv. forseti, að það á ekki bara við þingmenn stjórnarandstöðunnar heldur alla þingmenn og einnig hæstv. forsrh., ef hann skoðar hug sinn vandlega, sem sjá að það gengur ekki að setja hlutina svona upp. Hér er komið að mjög viðkvæmu úrslitaatriði í samskiptum þingsins, allra þingmanna og ríkisstjórnarinnar, og ég hvet hæstv. forsrh. til að leggja vinnu í það að finna lausn á því ágreiningsefni.