Íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins

Fimmtudaginn 05. desember 1996, kl. 14:38:42 (1902)

1996-12-05 14:38:42# 121. lþ. 36.6 fundur 71. mál: #A íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins# (leiga, sala embættisbústaða) frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[14:38]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég tel að ef þetta frv. verður að lögum geti það leitt til kjaraskerðingar ákveðins hóps opinberra starfsmanna og einnig að það geti orðið erfitt að fá embættismenn út á land. Ég tel að meiri hlutinn á Alþingi og ríkisstjórnin verði að bera ábyrgð á þessu frv. og mun því ekki greiða atkvæði.