Brunatryggingar

Mánudaginn 09. desember 1996, kl. 15:26:01 (1926)

1996-12-09 15:26:01# 121. lþ. 37.5 fundur 75. mál: #A brunatryggingar# (umsýslugjald) frv., Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur

[15:26]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 273 við frv. til laga um breytingu á lögum nr. 48/1994, um brunatryggingar, með síðari breytingum. Í meðferð málsins þegar gerð var brtt. í efh.- og viðskn. hafa tvö gjöld sem heita viðlagatryggingariðgjald og álag á viðlagatryggingariðgjald misritast og með þessari brtt. er verið að leiðrétta það.