Breytingar á lögum um LÍN

Þriðjudaginn 10. desember 1996, kl. 13:44:04 (1950)

1996-12-10 13:44:04# 121. lþ. 38.91 fundur 136#B breytingar á lögum um LÍN# (aths. um störf þingsins), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[13:44]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Eins og ég sagði áðan, mun útfærsla ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna á því hvernig þetta mál verður leyst liggja fyrir og þeir fjármunir verða til staðar sem hv. þm., formaður fjárln., gat um áður en við förum í jólafrí. En ég geri ekki ráð fyrir að það muni takast að útfæra þetta í lagafrv. sem hægt sé að afgreiða á þeim skamma tíma til vors. Það er ekki hægt að tala um ríkisstjórnina og stjórnarflokkana sem einhvern aðila úti í bæ í þessu samhengi, það veit hv. þm. Hann hefur sjálfur verið í ríkisstjórn og veit að ríkisstjórnin er ekki úti í bæ.