Viðvera ráðherra og frumvarp um málefni fatlaðra

Fimmtudaginn 12. desember 1996, kl. 13:35:17 (2079)

1996-12-12 13:35:17# 121. lþ. 42.91 fundur 139#B viðvera ráðherra og frumvarp um málefni fatlaðra# (aths. um störf þingsins), SighB
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[13:35]

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Út af orðum forseta um að taka á dagskrá frv. til laga um veiðar utan fiskveiðilögsögunnar, þá vil ég spyrjast fyrir um hvort það sé ekki alveg öruggt að hæstv. sjútvrh. verði viðstaddur þá umræðu. Hann var með veikindaleyfi á Alþingi í gær og ég óska eftir því að umræðan fari ekki fram nema að viðstöddum hæstv. ráðherra.