Fiskveiðar utan lögsögu Íslands

Fimmtudaginn 12. desember 1996, kl. 13:53:22 (2089)

1996-12-12 13:53:22# 121. lþ. 42.4 fundur 57. mál: #A fiskveiðar utan lögsögu Íslands# (heildarlög) frv., Frsm. 1. minni hluta SighB (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[13:53]

Frsm. 1. minni hluta sjútvn. (Sighvatur Björgvinsson) (um fundarstjórn):

Virðulega forseti. Ég tel að það sé ekki hægt að hefja umræðuna fyrr en búið er að dreifa nefndarálitum. Aðeins hefur verið dreift einu nefndaráliti, nefndaráliti meiri hluta en ókomin eru að ég hygg nefndarálit bæði 1. og 2. minni hluta í nefndinni og fyrr en þau liggja fyrir tel ég að ekki sé hægt að hefja umræðuna.