Fjárlög 1997

Föstudaginn 13. desember 1996, kl. 12:26:45 (2141)

1996-12-13 12:26:45# 121. lþ. 43.3 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[12:26]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti hefur glöggan skilning á vanda hv. ræðumanns og mun því fresta fundinum þar til umræddir hæstv. ráðherrar eru mættir til fundar. Fundinum verður frestað til kl. 13.30. Forseti vill einnig geta þess að þá hefst atkvæðagreiðsla og í kjölfar hennar mun fram haldið þeim umræðum sem nú eru yfirstandandi.