Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Ég get út af fyrir sig skilið að það sé kannski erfitt fyrir hv. þm. að svara þessu í einstökum atriðum. En mér finnst nauðsynlegt að menn átti sig á því að ef það á að taka upp samtímagreiðslur, þó þær yrðu kannski takmarkaðar að einhverju leyti sem ég sé nú ekki hvernig ætti að gera, en segjum að það yrði gert þá mundi það þýða tilflutning á nokkur hundruð millj. kr. Þessi breyting upp á 100 millj. kr. getur ekki dugað til þess á rekstrargrunni eins almanaksárs að tryggja þessar svokölluðu samtímagreiðslur. 100 millj. kr. gætu hjálpað til í sambandi við breytingu á reglum um endurgreiðslur. Ég geri ráð fyrir að það séu ýmsar aðrar lagfæringar sem menn eru þarna með í huga. Það er hins vegar ljóst að ef endurgreiðslubyrðin verður minnkuð og lækkuð hlutfallslega frá því sem nú er þá þýðir það að það verður að endurútgefa öll skuldabréf Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá 1992 vegna þess að það er ekki hægt að búast við að þeir sem hafa verið með háu endurgreiðslukvaðirnar í bréfum sínum frá 1992 beri þær áfram ef aðrir verða lækkaðir. Það er bersýnilega ósanngjarnt þannig að það er mikil vinna fram undan. Ég skil vel að menn eigi erfitt með að svara spurningum í einstökum atriðum.
Tilefni þess að ég spurði er fyrst og fremst að vekja athygli á því að ef það á að taka upp samtímagreiðslur þá þýðir það tilflutning á fjármunum á milli almanaksára um nokkur hundruð millj. kr. og 100 millj. duga engan veginn í þeim efnum.