Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Mánudaginn 16. desember 1996, kl. 15:51:00 (2263)

1996-12-16 15:51:00# 121. lþ. 45.5 fundur 181. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# frv. 152/1996, Frsm. minni hluta LB
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur

[15:51]

Frsm. minni hluta sjútvn. (Lúðvík Bergvinsson):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti minni hluta sjútvn. á þskj. 363 en að því standa auk mín Steingrímur J. Sigfússon, formaður sjútvn., Svanfríður Jónasdóttir, auk þess sem Guðný Guðbjörnsdóttir hefur setið fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Minni hluti nefndarinnar gerir ekki athugasemd við þau áform að fjármagna nýtt hafrannsóknaskip með þróunarsjóðsgjaldi. Minni hlutinn styður einnig þá breytingu á frv. að árið 1996 verði síðasta árið sem fiskvinnslunni verði gert að greiða til Þróunarsjóðsins. Minni hlutinn telur hins vegar gagnrýnivert hvernig ákvæðin um úreldingu fiskvinnsluhúsa hafa verið túlkuð en það kom fram hjá gestum sem til nefndarinnar komu að þau hafi verið túlkuð þannig að fiskvinnsluhús hafi ekki verið úrelt nema legið hafi fyrir að mögulegt væri að selja þessi hús. Það er hvergi kveðið á um það í núgildandi lögum um Þróunarsjóð að þetta skilyrði sé til staðar og því vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. sjútvrh., sem er kominn í salinn, hvort þetta séu fyrirmæli frá hæstv. sjútvrh. að úrelda ekki fiskvinnsluhús fyrr en það liggi fyrir að mögulegt sé að selja þau hús.

Minni hlutinn hefur allan vara á varðandi hringl með önnur ártöl í frv. og hefur litla trú á að sólarlagsákvæði frv. haldi þegar þar að kemur. Þá bendir minni hlutinn á að einfalda hefði mátt það gjald sem innheimt er af útgerðinni þannig að einungis væri innheimt skv. 6. gr. Aðeins hefði þurft að hækka upphæðina sem þar er tilgreind, 1 kr. fyrir hvert þorskígildiskíló, í 1 kr. og 27 aura til að fá sömu fjárhæð og nú á að ná með því að innheimta einnig gjald miðað við stærð skipa, sbr. 4. gr. Sú aðferð gerir innheimtuna flóknari en efni standa til auk þess sem hún leiðir til mismununar þar sem hámark er á gjaldinu og stærstu skipin greiða þar með hlutfallslega minna en þau litlu og meðalstóru. Brtt. meiri hlutans gera ráð fyrir framlengingu á ákvæðinu um úreldingu krókabáta. Þar er um að ræða framhaldssögu sem þingheimi er kunn, en þetta er í þriðja skipti á einu og hálfu ári sem lögum um Þróunarsjóðinn er breytt til þess að stuðla að fækkun í smábátaflotanum. Þessi breyting á frv. er á ábyrgð meiri hlutans, enda ekki ljóst hver staða smábátaflotans verður þótt lögunum sé breytt nú hans vegna eina ferðina enn. Minni hlutinn mun greiða atkvæði um einstakar greinar frv. eftir efni þeirra.