Einar Oddur Kristjánsson:
Herra forseti. Brtt. á þskj. 391 er flutt vegna mistaka sem urðu hér í gær. Hún er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Við 4. gr. Á eftir b-lið komi nýr stafliður er orðist svo: Eftirgreind tollskrárnúmer falla brott úr A-lið viðaukans: 1806.9027 og 3302.1029.``
Þetta þótti rétt til þess að ekki færi milli mála að þetta væri A-liður viðaukans. Það sem um er að ræða hér er morgunkorn með súkkulaði.