Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Með þessu ákvæði er verið að hækka lántökuheimildir Landsvirkjunar um litlar 4.200 millj. kr. vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda á Grundartanga og virkjana tengda þeim. Efh.- og viðskn. eyddi miklum tíma í að skoða þetta mál og liggur fyrir að það er álit nefndarmanna að í raun og veru hafi ekki verið fullnægjandi efnislegar forsendur til að taka endanlega afstöðu til þess hvort veita eigi þessar heimildir. Þannig varð það niðurstaða nefndarinnar að afgreiða skilyrtar heimildir til handa Landsvirkjun sem liggja óvirkar í lánsfjárlögum þangað til endanleg niðurstaða liggur fyrir um fjármögnun framkvæmdanna og þangað til efh.- og viðskn. hefur tekið málið fyrir á nýjan leik þegar þar að kemur. Í raun og veru er það formsatriðið eitt að hafa þessar heimildir í lánsfjárlögum þangað til skilyrðunum er fullnægt. Í því ljósi er ekki ástæða til þess í sjálfu sér að amast við því að þessar heimildir liggi þarna fyrir ónotaðar þangað til málið verður tekið fyrir á nýjan leik.
>)