Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997

Fimmtudaginn 19. desember 1996, kl. 22:04:01 (2523)

1996-12-19 22:04:01# 121. lþ. 51.5 fundur 119. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997# (breyting ýmissa laga) frv. 140/1996, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur

[22:04]

Svavar Gestsson:

Staðreyndin er sú, herra forseti, að frá því að Framkvæmdasjóður fatlaðra var stofnaður hefur hann aldrei haft minni fjármuni en gerð er tillaga um nú, aldrei. Ég tel að hér sé um hættulegan niðurskurð að ræða og að hann geti komið alvarlega niður á þjónustunni við fatlaða í framtíðinni. Þess vegna segi ég nei.