Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég get ekki gert að því hvernig hv. þm. skilur orð annarra, en það sem ég sagði var ósköp einfaldlega það að verði launahækkanir umfram verðlagshækkanir, þá er ástæða til þess að endurskoða ákvörðun sem nú liggur fyrir. Annað sagði ég ekki hvað það snertir.
Það er einnig sjálfsagt, virðulegi forseti, að kynna sér að hvort lög séu brotin með þeirri framsetningu sem er í fjárlagafrv. Ef menn telja að það sé verið að fela 800 millj. með bókhaldsbrellum, þá hefur það a.m.k. ekki gengið mjög vel upp því að ég hugsa að þetta séu frægustu 800 millj. sem um getur í þessu frv. Þannig að sá feluleikur hefur engan veginn gengið upp, hafi það átt að vera sem alls ekki var, því það var skýrt tekið fram þegar endurskoðuð tekjuáætlunin kom bæði til efh.- og viðskn. og eins til fjárln. hverjar væru forsendur tekjuáætlunarinnar. Og ég vil benda hv. þm. á að lánsfjárlög eru líka lög og byggjast reyndar á lögum líka og það er nú svo að það þekkist frá fyrri tíð að menn hafa jafnvel lækkað beinlínis framlög ríkisins, t.d. til Lánasjóðs ísl. námsmanna, án þess að nokkur skapaður hlutur væri á bak við það, heldur bara látið róa í trausti þess að einhvern tíma kæmu einhverjir sem björguðu þeim út úr því óláni sem þeir hefðu lent í við fjárlagagerðina. Þetta veit ég að hv. þm. kannast afar vel við því að þetta dæmi sem ég er að vitna til er ekki ýkjagamalt, reyndar frá því fyrr á þessum áratug þegar hann var menntmrh.