Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Þetta var athyglisvert svar að svo miklu leyti sem þetta var svar. Mér fannst sérstaklega athyglisvert að heyra hæstv. ráðherra taka þannig til orða að hann teldi sig vera í samningaviðræðum við manninn. Það er greinilega eitthvað óljóst hvort um sé að ræða samningaviðræður eða ekki.
Hitt var líka athyglisvert að hæstv. ráðherra bar ekki á móti því sem fram hefur komið í fjölmiðlum og ég vitnaði til, að hæstv. ráðherra hefði boðið ráðuneytisstjóranum starf forstöðumanns Löggildingarstofunnar tilvonandi. Við hljótum auðvitað að taka það, herra forseti, sem staðfestingu á því að rétt sé eftir haft, að það felist í bréfinu þó að hæstv. ráðherra vilji ekki upplýsa frekar um það á þessu stigi. Það liggur í hlutarins eðli að ef þar væri farið með staðlausa stafi, þá hefði hæstv. ráðherra að sjálfsögðu mótmælt því og leiðrétt það hér. Eftir stendur þá sú athyglisverða staðreynd að hæstv. ráðherra hefur sem sagt fyrir fram falboðið þetta starf manni sem talið var að ætti lögvarinn rétt til þess að setjast í annað embætti þegar hann kæmi úr launalausu leyfi. Þetta er hið athyglisverðasta mál, herra forseti, hið athyglisverðasta mál og ég er alls ekki viss um að við séum búin að sjá fyrir endann á því.