1996-12-21 00:54:41# 121. lþ. 55.8 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., HG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

[24:54]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Hér er lagt til að veitt verði 5 millj. kr. til grunnkortagerðar á Fljótsdalshéraði samkvæmt samningi. Vinna að þessu máli var hafin fyrir nokkrum árum en stöðvaðist vegna fjárskorts. Hér er í rauninni um það að ræða að koma kortagerð fyrir þetta svæði í hliðstætt horf og er hér á Reykjavíkursvæðinu, þ.e. Reykjavík og nágrenni og sem þyrfti að verða sem fyrst um land allt. Það er mjög bágt til þess að vita ef ekki er stuðningur við að leggja fram fé á móti heimaaðilum til að þoka svona máli fram.