Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Örstutt. Það er alveg ljóst að hæstv. iðnrh. vísar til þess að þeir sem ætla að reisa þarna fyrirtæki eigi að ráða. Það eru meginrök hans í málinu að sótt hafi verið um þetta af erlendum fjárfestum og þeir eigi að ráða ferðinni en ekki þau fjöldasamtök Íslendinga sem eru að vara við og andmæla.