Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Hér eru greidd atkvæði við 3. umr. um að flytja brunavarnir og Brunamálastofnun ríkisins frá félmrn. til umhvrn. Ég hélt nú, virðulegur forseti, satt að segja að umhvrn. hefði alveg nóg að sýsla þó ekki væri verið að taka við þessum pakka frá hæstv. félmrh. sem hann út af lífinu vill losna við vegna þeirra vandkvæða sem hafa verið innan þessarar stofnunar um lengri tíma. Umhvrn. okkar, því miður, er þannig statt að það er aldeilis skelfilegt upp á að líta. Mér sýnist að það sé að verða brýnt að gerð verði stjórnsýsluendurskoðun á þessu ráðuneyti. Ég held að það væri ástæða til að gera það áður en þessi ákvörðun hér er tekin til að átta sig á því hvort ástæða sé til að vera að hlaða fleiri pinklum á þetta ráðuneyti eins og þar hefur verið staðið að málum. Ég efa það stórlega. Þetta er heldur dapur dagur fyrir hæstv. umhvrh. að eiga að fara að axla þennan pinkil.