Álbræðsla á Grundartanga

Föstudaginn 16. maí 1997, kl. 22:46:32 (6786)

1997-05-16 22:46:32# 121. lþ. 128.2 fundur 445. mál: #A álbræðsla á Grundartanga# frv., HG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur

[22:46]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Sú niðurstaða sem stefnir í í þessari atkvæðagreiðslu er afar alvarlegt mál. Það þarf kannski ekki að koma svo mikið á óvart með tilliti til undirbúnings málsins og hvernig að því hefur verið staðið. En að það skuli vera fellt á Alþingi Íslendinga að iðnfyrirtæki af þessum toga verði búið besta fáanlegum mengunarvarnabúnaði á hverjum tíma segir mikla og dapurlega sögu. Ég segi já við tillögunni.