Ferill 60. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 60 . mál.


112. Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Lúðvíks Bergvinssonar um opinbera fjárstyrki til eflingar markaðsstarfi heilsárshótela á landsbyggðinni.

    Eftir hvaða reglum og sjónarmiðum vann sú nefnd sem samgönguráðherra skipaði til þess að gera tillögur að úthlutun á 20 millj. kr. sem Alþingi veitti á fjárlögum ársins 1995 til eflingar markaðsstarfi heilsárshótela á landsbyggðinni? Byggðist úthlutunin á langtímastefnumótun ráðuneytisins í ferðamálum? Var kannað sérstaklega hvort einstök hótel gætu frekar aukið nýtingu sína utan háannatímans en önnur og hvaða hótel á landsbyggðinni væru betur en önnur til þess búin að halda fundi og ráðstefnur? Hvernig var rekstrareiningin heilsárshótel skilgreind? Hvaða gögn þurftu styrkþegar að leggja fram áður en styrkur kom til útborgunar?
    Nefnd sú sem samgönguráðherra skipaði til að úthluta 20 millj. kr. til heilsárshótela og í sátu Þorleifur Þór Jónsson frá Ferðamálaráði, Björn Jósep Arnviðarson frá Ferðamálasjóði og Sturla Böðvarsson alþingismaður hafði það að leiðarljósi í starfi sínu að kanna hvaða hótel gætu aukið nýtingu utan háannatíma með því fyrst og fremst að efla kynningu á ráðstefnu- og fundaraðstöðu. Sú stefna var tekin að veita styrk til færri aðila fremur en fleiri til þess að það takmarkaða fjármagn sem til ráðstöfunar var mundi nýtast sem best. Við val á hótelum leit nefndin helst til þeirra sem hafa möguleika á að halda fundi og ráðstefnur, og á þeim grunni var þeim gefið vægi eftir stærð, möguleikum á sóknarfærum og efnahagslegri þörf. Nefndin lagði mikla áherslu á að þær rekstrareiningar sem valdar voru stæðu undir nafni sem heilsárshótel á landsbyggðinni og væru forsenda frekari uppbyggingar ferðaþjónustu á viðkomandi svæði. Því var hluta af fjármagninu dreift, en hluta veitt til samtaka heilsárshótela.
    Ráðuneytið gerir ekki ráð fyrir því í langtímastefnumótun sinni í ferðamálum að fjármagn til þess að veita styrki til heilsárshótela sé varanlegur þáttur.
    Áður en styrkur kom til útborgunar þurftu styrkþegar að leggja fram gögn sem m.a. tilgreindu í hvað ætti að ráðstafa fénu og áætluðum afrakstri af átaki.

    Hvaða rök lágu að baki styrkveitingu til hvers hinna ellefu hótela og því að viðkomandi hótel fékk þá fjárhæð sem því var úthlutað?
    Upphæð styrks sem veitt var til hvers hótels var miðuð við herbergjafjölda, möguleikum á sóknarfærum og efnahagslegri þörf.

    Hvernig fylgdist ráðuneytið með því að féð væri notað eins og til var ætlast?
    Eftir að viðkomandi hótel höfðu gert grein fyrir í hvað ætti að nota styrkinn var hann greiddur út.

    Er Ferðamálasjóður hluthafi í einhverju þeirra hótela sem fengu styrk og þá hverra? Hversu hátt hlutfall hlutafjár á Ferðamálasjóður í viðkomandi hótelum? Hvernig var greiðslustaða þeirra hótela sem fengu styrk gagnvart Ferðamálasjóði þegar styrkirnir komu til útborgunar?
    Ferðamálasjóður á 27,12% hlut í Hótel Húsavík, 20,20% hlut í Hótel Stykkishólmi og 26,57% hlut í Hótel Valaskjálf, en öll fengu þessi hótel styrk. Hótel Húsavík hefur engar skuldir við Ferðamálasjóð, heildarskuld Hótels Valaskjálfar við sjóðinn er 1.733.511 kr., þar af 328.282 kr. í vanskilum, og heildarskuld Hótels Stykkishólms er 24.485.344 kr., þar af 9.295.722 kr. í vanskilum.

    Er lokið úthlutun á þeim 15 millj. kr. sem heimilt er að verja á árinu 1996 til heilsárshótela á landsbyggðinni og ef svo er, til hvaða hótela runnu þeir styrkir? Ætlar ráðherra að fara að tilmælum samkeppnisráðs, sem fram koma í áliti þess nr. 7/1996, um að við framkvæmd styrkveitinga á vegum ráðuneytisins verði tekið mið af ákvæðum samkeppnislaga?
    Ekki er enn búið að úthluta þeim 15 millj. kr. sem heimilt er að verja til heilsárshótela á landsbyggðinni á árinu 1996.

    Hvers vegna var gert upp á milli heilsárshótela í Vestmannaeyjum við úthlutun styrkja fyrir árið 1995, en þar eru starfandi tvö heilsárshótel, hvort um sig með átján herbergjum og góðri fundaaðstöðu? Telur ráðherra að sú úthlutun sé í samræmi við jafnræðisreglu stjórnarskrár og stjórnsýslulaga?
    Það var mat úthlutunarnefndarinnar að þessu sinni að veita skyldi Hótel Bræðraborg styrk á grundvelli þess sem að framan greinir. Ráðherra telur að þessi niðurstaða brjóti ekki jafnræðisreglu stjórnarskrár og stjórnsýslulaga.