Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 111 . mál.


119. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um flutning sendiherra og annarra starfsmanna utanríkisþjónustunnar.

Frá Svavari Gestssyni.



    Hvaða reglur gilda um flutning sendiherra og annarra flutningsskyldra starfsmanna utanríkisþjónustunnar að því er varðar starfstíma á hverjum stað, tilkynningarfrest og önnur slík starfskjaraatriði?
    Hvaða reglur gilda um greiðslu kostnaðar af flutningi starfsmanna utanríkisþjónustunnar?
    Hverju nam kostnaður ráðuneytisins af flutningi:
         
    
    sendiherra,
         
    
    annarra starfsmanna utanríkisþjónustunnar,
        skipt eftir árum 1991–95?


Skriflegt svar óskast.