Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. –
196
. mál.
221. Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um beingreiðslur til bænda, sundurliðað eftir kjördæmum.
Frá Kristni H. Gunnarssyni.
Hve margir bændur í hverju kjördæmi og samtals fengu beingreiðslur á síðasta verðlagsári, hve há var fjárhæðin í hverju kjördæmi og samtals? Hvernig skiptast beingreiðslurnar milli sauðfjárbænda og mjólkurframleiðenda í hverju kjördæmi og samtals?
Hve margir bændur, sundurliðað eftir kjördæmum, fengu beingreiðslur á síðasta verðlagsári:
undir 50 þús. kr. á mánuði,
50–100 þús. kr. á mánuði,
100–150 þús. kr. á mánuði,
150–200 þús. kr. á mánuði,
yfir 200 þús. kr. á mánuði?
Hver er samtala beingreiðslunnar í hverjum tekjuflokki?
Skriflegt svar óskast.