Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1996. – 1066 ár frá stofnun Alþingis.
121. löggjafarþing. – 165 . mál.
271. Svar
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar um Landsvirkjun.
Framlög eigenda Landsvirkjunar hafa verið greidd með tvennum hætti, annars vegar með peningaframlögum og hins vegar með framlögum í formi mannvirkja. Samtals nema framlög eigenda Landsvirkjunar 7.213.470 þús. kr. á verðlagi í árslok 1995, en þar af nema eiginfjárframlög 2.148.908 þús. kr. á sama verðlagi. Eiginfjárframlög hvers eiganda um sig eru sem hér segir:
Þús. kr.
Ríkissjóður
1.074.454
Reykjavíkurborg
956.801
Akureyrarbær
117.653
Framlög eigenda Landsvirkjunar önnur en bein fjárframlög fólust í eftirtöldum eignum:
Hér á eftir verða sýnd framlög eigenda á nafnvirði (verðlag hvers tíma) og svo á verðlagi í árslok 1995.
A. Framlög eigenda, fjárhæðir á verðlagi hvers tíma.
Ár
Ríkissjóður
Reykjavík
Akureyri
1965
2.264.000
2.264.000
1966
150.000
150.000
1972
1.254.304
1.254.304
1974
580.000
580.000
1975
620.000
620.000
1976
550.000
550.000
1979
1.800.000
1.800.000
1980
2.630.000
2.630.000
1981
3.820.000
3.820.000
1982
5.220.000
5.220.000
1983
269.209.356
198.750.000
89.896.700
1984
-24.096.642
B. Framlög eigenda, verðlag í árslok 1995.
Ár
Ríkissjóður
Reykjavík
Akureyri
1965
1.636.639.626
1.636.639.626
1966
97.154.494
97.154.494
1972
351.375.508
351.375.508
1974
76.940.127
76.940.127
1975
59.894.109
59.894.109
1976
42.293.816
42.293.816
1979
44.011.207
44.011.207
1980
40.822.337
40.822.337
1981
40.843.781
40.843.781
1982
34.242.972
34.242.972
1983
1.182.492.052
873.001.959
394.867.901
1984
-85.327.704
Samtals
3.606.710.029
3.211.892.232
394.867.901
Heildarframlög eigenda á verðlagi í árslok 1995
7.213.470.162
Með sameignarsamningi dags. 27. febrúar 1981, sem tók gildi 1. júlí 1983, náðist samkomulag eignaraðila um skiptingu eigin fjár á grundvelli endurmats sem fram fór á eignum Landsvirkjunar og Laxárvirkjunar. Lögum um Landsvirkjun var breytt til að staðfesta þetta samkomulag og er eignarhluturinn tilgreindur í 1. gr. laganna. Landsvirkjun er sameignarfélag ofangreindra eignaraðila og var bókfært eigið fé Landsvirkjunar í árslok 1995 25,7 milljarðar kr. Nýlegt óháð mat á markaðsverði hefur verðlagt fyrirtækið á um 24 milljarða kr. Vegna umræðna um eignarhlut í fyrirtækinu má benda á að skv. 17. gr. laga nr. 42/1983, um Landsvirkjun, er öllum sveitarfélögum, samtökum þeirra og sameignarfélögum heimilt að gerast eignaraðilar að Landsvirkjun að tilteknum skilyrðum uppfylltum, m.a. að þeir leggi fram verðmæti er nemi minnst 1% af endurmetnum höfuðstól Landsvirkjunar í upphafi þess árs er af eignaraðild verður. Við mat á eign hvers eiganda fyrirtækisins hefur verið miðað við eigið fé þess. Nýtur slík eign stjórnarskrárverndar.
sundurliðað eftir árum og á núvirði?
Ekki hefur verið veittur sérstakur afsláttur af verði á raforku til almenningsrafveitna í eigu eigenda Landsvirkjunar og engir sérsamningar hafa verið gerðir sem leiða af sér lægra orkuverð til þeirra en annarra. Landsvirkjun selur lögum samkvæmt raforku í heildsölu eftir sömu gjaldskrá hvar sem er á landinu. Sérstök kjör sem í boði hafa verið á undanförnum árum hafa staðið öllum til boða.
Landsvirkjun hefur frá árinu 1987 greitt eigendum sínum ábyrgðargjald sem nemur 0,25% af útistandandi lánum fyrirtækisins á hverjum tíma en eigendur eru í einfaldri ábyrgð fyrir þeim. Ábyrgðargjald til ríkisins er greitt samkvæmt lögum en til Reykjavíkurborgar og Akureyrar samkvæmt samþykkt stjórnar Landsvirkjunar svo að jöfnuður yrði milli eigenda. Greiðslur ábyrgðargjaldsins eru sem hér segir og eru fjárhæðir í millj. kr. á verðlagi ársins 1995:
Ár
Ríki
Reykjavík
Akureyri
Samtals
1987
24
22
3
49
1988
49
44
5
98
1989
49
44
5
98
1990
45
40
5
90
1991
48
42
5
95
1992
49
43
5
97
1993
58
52
6
116
1994
59
52
6
117
1995
56
49
6
111
Samtals
437
388
46
871
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 42/1983, um Landsvirkjun, skal fyrirtækið greiða eigendum sínum arð af eiginfjárframlögum þeirra og þá með hliðsjón af afkomu fyrirtækisins. Stjórn Landsvirkjunar ákveður arðgreiðsluna. Um er að ræða framlög eigenda í peningum en uppreiknuð með byggingarvísitölu. Hér að neðan eru sýndar arðgreiðslur Landsvirkjunar frá upphafi í millj. kr. og á verðlagi í árslok 1995:
Ár
Ríki
Reykjavík
Akureyri
Samtals
1979
18
18
0
36
1985
60
53
7
120
1988
42
38
5
85
1989
42
38
5
85
1990
42
38
5
85
1991
42
38
5
85
1992
42
38
5
85
Samtals
288
261
32
581